um að setja eitt stykki blogg hér fyrir hana Helgu...
en ég er eins og er að vinna í sundlauginni miklu hér á Blö... svaka fjör... Páskafrí eftir 3 daga og jei þaað verður sko gaman að komast í frí. Er að fara suður á föstudag og ætla að skella mér í bláfjöll á sunnudag og auðvitað ætlar kallinn að koma með mér á Bretti haldiði að það verðu ekki stuuð... já og svo er stefnan líka tekin á Hlíðarfjall seinna í næstu viku. Maður verður að nota tækifærið á meðan það er snjór í fjöllunum.
Annars er lítið að frétta var í Rvk seinustu helgi og þar var verslað vóó eyddi soldið miklum peningum förum ekkert nánar út í það. en já það var verslað og svo var kíkt á nýjasta fjölskyldumeðliminn í familíunni hjá Fannsa. En bróðir hans var að eignast litla og sæta stelpu og verður hún skírð næsta laugardag.
Hvað skal segja meira maður er bara alltaf að vinna og vinna og eftir vinnu skellir maður sér upp í hesthús og fer að stússast þar. Alltaf gott að komast á bak. En þar sem er að vinna alla þessa viku frá 8 - 3 og 3- 20:30 þá kemst ég ekkert á bak nema ég fari í myrkrinu á kvöldin veit ekki. Maður verður bara duglegur í páskafríinu.
Vá hvað ég væri til í að bílinn minn væri sona eins og þessi kannski að ég geri minn bara sona hann væri suddalegur allavega það veit ég... aldrei að vita hvað manni dettur í hug
En þetta er nóg í bili
11. mars 2008 klukkan 17:17
Katrín Sif Rúnarsdóttir 1 athugasemd
Ætli það sé ekki best að henda inn einu bloggi hér.
Jólin búin og ég er bara búin að hafa það fínt um jólin. Fékk snjóbretti í jólagjöf og það var auðvitað skellt sér í Tindastól á laugardeginum eftir jólin og rennt sér... Já og við fórum líka með sleðann góða. Þvílíkur kaggi þessi sleði... Annars byrjaði ég bara að vinna 3 jan og er bara að vinna alla daga og eftir vinnu er maður bara búin að skella sér alltaf á sleðann af því að það er geðveikur snjór til þess að sleðast. Var að koma af honum núna rétt áðan og mig langar bara að vera lengur en það er bara komið svo mikið myrkur. En þetta er rosa græja ég gaf í botn og var smeik... en þetta er gaman
Hef ekkert meira að segja
Au Revoir
09. janúar 2008 klukkan 19:43
Katrín Sif Rúnarsdóttir 2 athugasemdir
ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg hjá kellunni...
Veit ekki alveg hvað maður á að segja hérna. Já ég er bara að vinna alla daga í skólanum hér á Blö... svaka stuð. Jólin fara koma bara eftir nokkra daga og það er enginn snjór hér sem er ömurlegt. Langar svo mikið að komast á sleða og bretti. En nei af því að snjórinn er farinn þá er bara komin hálka í staðinn og ég get heldur ekki farið á leika mér á krossaranum. þannig að maður verður bara að finna sér eitthvað annað. Er að spá í að fara taka hestinn minn inn held ég noti hann meira þar sem að maður getur alltaf farið á hestbak alveg sama hvernig færðin er.
Lauga mín er að fara koma heim bráðum og ég hlakka svoo mikið til að hitta hana.
Hef ekkert meira að segja....
bæjó
11. desember 2007 klukkan 15:45
Katrín Sif Rúnarsdóttir 2 athugasemdir
Haldiði að það hafi ekki bara moksnjóað á Króknum alla þessa viku og fullt af snjó og einmitt þegar ég er að fara frá Krók þurfti endilega að byrja snjóa. Á Blönduósi er enginn snjór bara ekkert. Er sem sagt flutt þangað og er að vinna í því að leita mér að vinnu. Búin að flyta allt draslið þangað og búin að skila íbúðinni á Krók. En ég er ekki búin að koma mér almennilega fyrir það kemur bara seinna. Fékk að prófa geðveikan snjósleða í vikunni sem bróðir Fannsa var að kaupa. Get ekki beðið þangað til snjórinn lætur sjá sig á Blö. Þá verð ég alla daga á þessu helvíti hahah.... hann er um 100 hö sem er ekki slæmt. Svo í sumar stoppa ég ekki á krossara helvítinu sem við fannsi eigum takk fyrir takk...
Þetta er nóg af bloggi en þið megið dunda ykkur við þetta
1. miðnafnið þitt: 2. Aldur: 3. Single or Taken: 4. Uppáhalds bíómynd: 5. Uppáhalds lag: 6. Uppáhaldshljómsveit: 7. Uppáhalds búð: 8. Tattoo eða göt: 9. Þekkjumst við persónulega? 10. Hver er tilgangurinn með lífinu? 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum? 12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? 13. Besta minningin þín um okkur? 14. Myndir þú gefa mér nýra? 15. Segðu eitthvað skrýtið um þig: 16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik? 17. Getum við hist og bakað köku saman? 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega? 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig? 20. Finnst þér ég góð manneskja? 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið? 22. Finnst þér ég aðlaðandi? 23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari? 24. Í hverju sefuru? 25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla 26. Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera saman? 27. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
02. nóvember 2007 klukkan 18:11
Katrín Sif Rúnarsdóttir 4 athugasemdir
París var bara mjög gaman en samt allt of stór borg fyrir svona sveitadurg eins og mig. Byrjaði á því þegar ég lendi þarna úti að finna ekki töskuna mína eða hvar töskurnar kæmu á bandið. Þetta var allt svo stórt og allt öf mörg bönd. Ég náttulega labbaði að einhverjum sem var að vinna þarna og spurði hvort hann talaði ensku, maðurinn sagðist tala smá en ekki mikið. En hann gat sagt mér hvert ég átti að fara til að ná í töskuna mína. Já og kjellan fann töskuna loksins og dreif sig í burtu frá þessum stað. Þegar út var komið beið amma eftir mér og við fórum með nokkrum lestum heim í íbúðina sem við vorum í.
Þennan dag fórum að skoða Notre Dame kirkjuna og vorum þar í einhverja stund. Svo var bara farið heim og borðað íslenskt lambakjöt Daginn eftir þá fór ég með ömmu og afa í siglingu á ánni Seina sem rennur í gegnum París. Þaðan sá ég fullt af fallegum byggingum og þar á meðal Eiffel turninn... Jeee... Eftir siglingu var svo borðað og svo farið heim eftir langann dag.
þriðji dagurinn var magnaður það var svo ógeðslega gott veður sól og blíða við fórum til Versalles en þar er konungshöllin og þar var maður allan daginn að skoða.
Fjórði dagurinn var svo farið í safn sem er neðanjarða og þar eru fullt af hauskúpum og mannabeinum raðað upp frekar ógeðslegt að rölta þarna í gegn. En ég lifði það af. Þarna niðri var beinunum raðað í allskonar mynstur. Í gamla daga var sem sagt fólk grafið upp í kirkjugörðunum og sett þarna niður....
Fimmti dagurinn var frekar skrítinn þar sem að allar neðanjarðarlestir og rútur vorur í verkfalli eða fólkið sem sér um að keyra þannig að maður þurfti að fara allt labbandi. Við ákáðum því bara að labba og skoða hverfið sem við bjuggum í og þar í kring. Þannig að það var ekki mikið meira gert þennan dag.
næst seinasta daginn fór ég svo á Eiffel turninn já og eftir að hafa beðið í klukkutíma í röð til að kaupa miða komst ég að lokum upp. Já mín afrekaði að fara alveg upp. stoppaði fyrst á annari hæð og vá hvað það var hátt. Var ekki alveg að þora að fara upp á þriðju og seinustu hæðina. En eftir að hafa staðið á annari hæð í um 20 mín ákvað ég að skella mér upp. Á Leiðinni í lyftunni þorði ég sko ekki að kíkja niður. Þegar ég var svo kominn upp og leit niður þá va þetta bara ok Já eftir að hafa verið þarna uppi var svo fengið sér að éta og svo var verslað einhverja minjagripi og súkklaði handa fólkinu heima.
Seinasti dagurinn var svo bara farið út á flugvöll og jeimin það var nú frekar erfitt fyrir mig að rata. Ég byrjaði á því að fara með ömmu og afa á lestarstöðina og kvaddi þau. Svo fór ég með systur mömmu og hún fylgdi mér á stöðina þar sem ég átti að taka lest. Loksins fundum við lestina og ég kvaddi hana og fór svo. eftir að lestin hafði stoppað á flugstöðinni þurfti ég að taka aðra til að komat á terminal 1 og það reddaðist.
Þegar mín kom svo og ætlaði að fara innrita sig þurfti ég að bíða í fokking klukkutíma til að komast að. Fékk svo sæti aftast í flugvélinni takk fyrir takk... En flugfreyjan fann svo sæti á betri stað og spurði hvort ég vildi ekki sitja þar.
Það gerði ég þannig að ég sat hjá vængnum... Eftir 3 klst flug var ég komin heim
Jæja meira hef ég ekki að segja
Au Revoir
24. október 2007 klukkan 12:51
Katrín Sif Rúnarsdóttir 2 athugasemdir
Jæja best að henda inn einu bloggi áður en maður fer til Frakklands.
Já ég er að fara út á morgunn og það verður vonandi svaka stuð. Ég hætti í sláturhúsinu í gær og ég fékk heldur betur að finna fyrir því. Get sagt að maður hafið verið rennblautur eftir langann og erfiðan vinnudag. Náði nú samt ekki að hefna mín á þeim. Geri það bara seinna. Lauga er víst farinn til Noregs og það er skrítið að vera á Króknum enginn Lauga þegar maður fór í vinnuna á morgnanna, enginn Lauga til að rúnta með og sonna... soldið skrítið. Ohhh.... ég vona að snjórinn fari að koma svo maður geti skellt sér á bretti og snjósleða. Ég vona að það komi geðveikt mikill snjór svo það sé hægt að sleðast almennilega. Ekki eins og seinasta vetur maður komst mjög lítið á sleða.
Je parle un tout petit peu francais. Þetta mun ég segja þegar ég er úti hahah... kann ekkert annað hhaha...
13. október 2007 klukkan 12:27
Katrín Sif Rúnarsdóttir 2 athugasemdir
Tíminnn líður heldur betur hratt ágústmánuður bara að verða búinn... það þýðir bara eitt, göngur og réttir. Mikið rétt ég neyðist víst til þess að fara smala. Nei nei það er bara fínt vona bara að veðrið verði gott nenni ekki að hafa rigningu og skíta kulda. Þá verð ég nefnilega pottþétt veik En já ég er búin að vera í viku fríi sem er bara búið að vera gott. Þarf svo að byrja vinna á mánudag iss þá fær maður einhverja peninga ekki veitir af því þegar maður fer til útlanda.
En já hvað get ég sagt meir jú ég veit ég held að ég sé búin að ákveða hvað ég ætla að læra meira er að spá í að fara í ferðamálaskólann þetta hljómar allt svo geggjað spennandi og þetta tekur bara eitt ár og maður fær það metið til eininga í Háskóla... en þetta kostar sitt þannig að ég ætla að vinna eins og brjálæðingur og fara í þetta næsta haust þar að segja ef ég verð ekki búin að skipta um skoðun hehe
en ég held að þetta sé nóg í bili...
31. ágúst 2007 klukkan 18:51
Katrín Sif Rúnarsdóttir 2 athugasemdir
Jæja þá er verslunarmannahelgin búin... og ég og Fannsi skelltum okkur til Rvk á laugardaginn og var verslað pínu og sonna. Fengum íbúð hjá bróður Fannars og var bara chillað á því um kvöldið og horft á dvd mynd. Á Sunnudag var svo bara sofið lengi og svo var maður bara latur.Fórum svo í Smárann en þar voru nú ekki margar búðir opnar. Brunuðum svo heim um kvöldið og var tekin ein rúnt beyja á Akranes og svo var prófað að rúnta pínu í Borgarnesi.
En já svo er maður bara að vinna á morgun og ég er ekki að nenna því. Verð ein á Krók af því að Fannar fékk frí þessa viku í vinnunni eða allir í vinnunni hans. Svindl En það verður bara að hafa það.
En ég er að fara til Frakklands í októmber jei geggjað gaman maður verður að fara rifja upp frönskuna svo maður getir spjarað sig í þessu landi...
En nóg komið í bili...
B
06. ágúst 2007 klukkan 18:20
Katrín Sif Rúnarsdóttir 2 athugasemdir
Fór á bíladaga á Ak. 16 og 17 júni og það var bara gaman... sá fullt af flottum bílum og þar á meðal honud accord sem mig langar að kaupa...
Já svo er maður bara að vinna alla daga, kíkir svo heim um helgar og já ég skellti mér á hestbak um helgina og það var gaman... fór líka á þennan svaka gæðing enda Sylvía búin að brúka hana í allt sumar og keppa á henni og allt... en já er að spá í að fara heim um helgina núna og horfa á hana keppa á hestamóti sem verður haldið um helgina.
Hey já ég var dugleg um helgina og tók bílinn minn allan í gegn og bónaði hann líka nú er hann hreinn og fínn...
hef ekkert meira að segja...
Au Revoir...
03. júlí 2007 klukkan 18:23
Katrín Sif Rúnarsdóttir 2 athugasemdir
Jæja þá er kellan alveg að fara útskrifast... á bara eftir að taka eitt fokkans upptökupróf í stæ 313 en það verður á þriðjudag... ætla bara vona að ég nái.
Fór suður á mánudag og kláraði að versla það sem mig vantaði og fann það allt Svo var bara brunað heim á þriðjudeginum og farið beint á vakt heima í sauðburði... svaka stuð... þannig að ég er bara heima hjá mér að hjálpa mömmu og pabba í sauðburðinum...
Shit á þriðjudag fengum við folald undan Kletti frá Hvammi geggjað sætt ... allt í lagi með það... um kaffileytið er pabbi eikkað að kíkja í kíkinn og sér hann að önnur meri sem er geld er búin að taka folaldið til sín og vildi ekki leyfa öðrum hryssum að koma nálægt sér. Þannig að pabbi sendi mig niður eftir til að reyna ná hryssunni svo folaldið gæti verið hjá mömmu sinni.. 'Eg fer og ekki næ ég hryssunni, pabbi kemur svo á fjórhjólinu og fer á því um girðinguna og ég á eftir. Svo stoppar hann og fer af og sé ég ekki betur en að það liggi hross í móanum.. 'Eg fer til pabba og athuga þetta. Var þetta ekki mamma folaldsins, hún hafði bara allt í einu drepist... Það var allt í lagi með hana um morguninn... skrítið... en við tókum folaldið heim og þarf að gefa því mjólk úr pela bara sætt.... Það er svo mikið rúsinurassgat
En jæja styttist í útskrift og svo fer maður að vinna á Hótel Varmahlíð. JEi gaman
Jæja ég kveð ykkur að sinni
18. maí 2007 klukkan 11:52
Katrín Sif Rúnarsdóttir 3 athugasemdir